Góða kvöld gott fólk, eða góðan dag, fer eftir því hvar í heiminum fólk er staðset.
Ætla að byrja á því að benda áhugasömum á myndasíðuna hér til hægri. Heil helingur af nýjum myndum þar. Vil einnig benda þeim sem hafa skoðað albúminn frá Surfe námskeiðinnu og Sydney voru í bölvuðu klúðri þangað til áðan og því gæti það verið til gagns og gamans að skoða þau aftur.
En nú að aðal málinu.
Nú sit ég hérna á Wave street, sem er nýja híbýli Unnar&co.
Sem sagt. Síðan v
ið skildum við ykkur síðast höfðum við farið frá Nyrsta punkt ferðar okkar niður til Melbourne og niður til syðsta punkt ferðar okkar. Alveg niður til Port Arthur í Tasmaniu. Eftir að hafa farið í Australian Zoo fórum við aftur niður á Gold Coast, fórum þar í
Rally. Sem sagt fengum kennslu í að keyra Imprezu WRX rallybíl á þessari
rallybraut, mjög svo skemmtilegt.
Strax eftir það hófst mikill hraðbrautaakstur niður í Blue Mountain og Hunter Vally. En Hunter Vally er mikið vínræktar hérað. Þar skoðum við minnsta vínræktargarð sem framleiðir sit eigið vín og allt gert í höndunum.
Eftir hafa drukkið í okkur fróðleik um vín og víngerð færðum við okkur til í Blue mountain. Vorum þar í fínu verði að túristast. Daginn eftir höfðum við áætlað að nýtt til klifurs, en allt kom fyrir ekki, vöknuðum við grenjandi rigningu svo lítið varð úr fyrirhuguðu klifri þann daginn. Pökkuðum við því saman og brunnuðum niður til Melbourne vorum komnir þanngað c.a 20:00 á föstudagskvöld.
Laugardagurinn fór svo í það að flytja búslóðina hingað á Wave street. Sunnudags eftirmiðdag áttum við bókað far til Tasmaniu með Spirit of Tasmania
Eftir 11klst siglingu og engan svefn um nóttina vorum við komnir. Veðrið þarna niður frá var ekkert ósvipað íslensku hausti. Frekkar kalt og grenjandi rigning. Fórum í siglingu á risa stóru vatni sem var umkringt af flottum fjöllum. Brunnuðum niður til Hobart og gistum þar.
Daginn eftir fórum við til Port Arthur sem eru gamlar fangabúðir. Síðasta daginn notuðum við til að skoða J.Boag's bjórverksmiðjuna. Þar fundum við drauma jobið. Vinna við það að athuga hvort bjórinn sé nógu góður c.a 10 manns vinna við það að smakka bjór daglega. Þar sem bjór er bitur og bragðkirtlarnir sem nema biturt bragð eru alveg aftast á tungunni verður maður að kringja bjór til að smakka hann. Svo er það rúsínan í pysluendnum, besti tími sólarhringsins til að smakka bjór er klukkan 10:00 á m0rgnanna. Gott að hafa þennan fróðleik á bakvið eyrað.
Föstudagsmorgun lentum við í afmælis morgunmat hjá Unni systir. Dagurinn fór svo í það að gera húsið party hæft fyrir kvöldið.
Í dag laugardag fórum við á veðreiðar. Veðreiðar eru rosalega vinsælar hérna, allir klæða sig í sit fínasta púss setja blóm og hatta í hárið rosa flott að sjá þetta. En eitt sem ég hef út á veðreiðarnar að setja, það er að þessir hestar kunna ekki tölt. Hvað er pointið að eiga hest ef hann kann ekki tölt, ég bara spyr.
Á morgun eru Unnur&co, Soffía og Ingi að fara noður til Kórals rifiðsins mikla og verðum við bræður því einnir í kotinu þar til við leggjum í 36klst ferðalag norður á 64°breiddar gráðu. Samkvæmt áætlun munnum við lenda þar um fjögurleitið á fimmtudag.
Minni á myndasíðuna.
Verið hress ekkert stress bless bless